Fréttir -

Landsmót UMFÍ 50+ í Neskaupstað

Landsmót UMFÍ 50+ í Neskaupstað

Landsmót UMFÍ 50+ fer fram í Neskaupstað dagana 28. - 30. júní 2019.

LANDSMÓT UMFÍ 50+ Í NESKAUPSTAÐ
Ertu farin að telja niður dagana fram að Landsmóti UMFÍ 50+ í Neskaupstað?
Nú er heldur betur farið að styttast í það.

Mótið fer fram dagana 28.-30. júní 2019.

Það er blanda af íþróttakeppni og annarri hreyfingu. Markmið mótsins er að fá fólk á besta aldri í heimi til að hafa gaman saman og njóta þess að taka þátt í heilbrigðri og skemmtilegri hreyfingu.

Mótið hefur farið fram á hverju ári síðan árið 2011 og er öllum opið sem verða fimmtugir á árinu og þeim sem eldri eru.

Allir geta tekið þátt og er engin krafa um að vera skráður í íþrótta- eða ungmennafélag. 

 

ÍÞRÓTTIR Á DAGINN OG SKEMMTUN Á KVÖLDIN
Í boði er keppni í frjálsum íþróttum, boccía, ringó, golfi, bridds, frisbígolfi, pílukasti, línudansi, lomber, strandblaki, sundi, pönnukökubakstri, pútti, skák og stígvélakasti. Garðahlaup er á meðal þeirra greina sem 18 ára og eldri geta líka tekið þátt í.

Alla dagana verða íþróttir í aðalhlutverki. Á laugardagskvöldinu verður svo skemmtikvöld og hátíðarkvöldverður. Veislunni stýrir enginn annar en Jens Garðar Helgason. Danshljómsveit Guðmundar R. Gíslasonar leikur fyrir dansi.

Aðeins kostar 4.900 krónur að taka þátt í Landsmóti UMFÍ 50+ í Neskaupstað og er fyrir það eina verð  sem fyrr hægt að skrá sig í eins margar greinar og viðkomandi hefur áhuga á.

Miði á skemmtikvöldið og hátíðarkvöldverðinn kostar 5.200 krónur.

Ertu búin/n að skoða dagskránna á Landsmóti UMFÍ 50+?

DAGSKRÁ LANDSMÓTS UMFÍ 50+ Í NESKAUPSTAÐ

LANDSMÓT UMFÍ 50+ Á FACEBOOK

Sjáumst hress á Landsmóti UMFÍ 50+ í Neskaupstað!
Með kærri kveðju frá UMFÍ

Fleiri fréttir

Myndlistarsýning eldri borgara

Nemendur á Listmálunarnámskeiði í Brúarlandi munu halda sýningu á verkum sínum í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar Lágafelli.
Sýningin verður opnuð þriðjudaginn 3.mars kl 18:00 og mun standa út mars mánuð.
Allir hjartanlega velkomnir!

Nánar »

Félagsfundur Famos

Félag eldri borgara í Mosfellsbæ boðar til fundar í Hlégarði miðvikudaginn 11. mars kl. 16:00
Kaffi á könnunni.
Kveðja stjórnin

Nánar »

Línudans námskeið

Línudans námskeið í Hlégarði þriðjudaga kl 15:00. Nýtt tímabil 3.mars – 28.apríl.
Námskeiðið kostar 5000kr, greiðist í fyrsta tíma (ekki posi). Kennari: Inga

Nánar »

GERVIGREIND

Fræðslufundur í Hlégarði miðvikudaginn 18. feb. 2026klukkan 13:00
Stefán Atli Rúnarsson kemur og fræðir okkur um gervigreind.

Nánar »

Aðalfundur FaMos 2026

Aðalfundur FaMos, félags aldraðra í Mosfellsbæ verður haldinn mánudaginn 16.febrúar kl. 19:00 í Hlégarði.
Eftir hefðbundin aðalfundarstörf mætir danshópurinn “Sporið” og sýnir þjóðdansa.

Nánar »
Scroll to Top