Glærur frá fræðslufundi í Hlégarði 31. janúar 2024
Fréttir frá Mosfellsbæ – Janúar 2024 – Regína Ásvaldsdóttir
Heilbrigð öldrun og aðgerðir gegn einmannaleika

Fréttir frá Mosfellsbæ – Janúar 2024 – Regína Ásvaldsdóttir
Heilbrigð öldrun og aðgerðir gegn einmannaleika

Opið hús / menningarkvöld verður mánudaginn 8. desember í Hlégarði kl. 20:00. Vorboðarnir syngja, Herdís Þorgeirsdóttir og vinkonur flytja stutt leikrit og kaffinefndin verður með sitt rómaða kaffihlaðborð. Ókeypis aðgangur fyrir FaMos félaga.
Gaman saman verður haldið í borðsalnum að Hlaðhömrum 2 fimmtudaginn 27. nóvember (síðasta fyrir jól). Helgi R. Einarsson tekur á móti leikskólabörnum og spilar og skemmtir fólki 🙂 – Allir velkomnir, það er gaman saman.
Enn er eftir fullt af fallegum handunnum vörum hjá okkur í Basar búðinni Brúarlandi Háholti 3. Opið mánudaga – fimmtudaga kl. 11:00 – 16:00 og á föstudögum kl. 13:00 – 16:00. Fallegar handunnar vörur á góðu verði.
Annað Opna hús vetrarins var í Hlégarði 10. nóvember. Um 125 manns mættu og skemmtu sér vel. Eftir dagskrána var kaffinefndin að venju með sitt rómaða kaffihlaðborð og var nóg af öllu þrátt fyrir metfjölda eða um 150 manns að Stöllunum meðtöldum.
Opna húsið / menningarkvöldið verður í Hlégarði mánudaginn 10. nóvember kl. 20:00. Aðgangur ókeypis fyrir FaMos félaga.