Um félagsstarfið

Samstarf félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ og FaMos

Félagsstarf eldri borgara og FaMos auglýsa sameiginlega dagskrá félagsstarfsins undir Þjónustumiðstöð aldraðra á Brúarlandi, Háholti 3.
Dagskráin er birt í Mosfellingi á bls. 6 og á heimasíðu bæjarins. Einnig er dagskráin send til félaga FaMos eftir netfangaskrá.

FaMos

Félag aldraðra í Mosfellsbæ
Brúarlandi, Háholti 3
270 Mosfellsbæ.

Ferðanefnd

 

Ferðanefnd FaMos

Ferðanefndin skipuleggur 2 – 3 ferðir á ári sem samanstanda af utanlandsferð, vorferð og haustferð. Nefndin vinnur í samvinnu við félagsstarf Mosfellsbæjar og auglýsir ferðir þegar undirbúningur hefst.

Fræðslunefnd

 

Fræðslunefnd FaMos

Fræðslunefnd hefur það að markmiði að standa fyrir tveimur til fjórum fræðslufundum á ári um ýmis málefni er varða eldri borgara. Nefndin fær til liðs við sig fyrirlesara, fræðimenn og aðra sem láta sig málefni eldri borgara varða.

Einnig er boðið upp á spjallhópa sem eru ætlaðir einstaklingum sem vilja rjúfa félagslega einangrun sína með því að hitta aðra sem eru í sömu stöðu.

Íþróttanefnd

 

Íþróttanefnd FaMos

Við stundum ýmsar greinar hreyfilistarinnar, vatnsleikfimi, boccia, ringó, pútt, leikfimi og gönguferðir. Við höfum unnið til verðlauna á mótum eldri borgara sem er hvatning og gleði í hugum okkar. Við hvetjum FaMos félaga til að koma með okkur í hreyfilistina sem bætir, hressir kætir.

Kaffinefnd

 

Kaffinefnd FaMos

Hlutverk kaffinefndar er að undirbúa kaffihlaðborð, leggja á borð og laga kaffi á “Opnu húsi” í Hlégarði einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina. Veitingar eru aðkeyptar.

Menningar- og skemmtinefnd

 

Menningar og skemmtinefnd FaMos

Menningar og skemmtinefnd FaMos stendur fyrir Opnu húsi/menningarkvöldi einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina, frá október fram í apríl, oftast annan mánudag í hverjum mánuði.

Skemmtunin er haldin í Hlégarði (eða Harðarbóli, ef Hlégarður er lokaður) og hefst klukkan 20 með skemmtidagskrá og höfum við fengið til okkar ýmsa skemmtikrafta, tónlistarmenn og söngkóra. Skemmtunin stendur yfir í um klukkutíma, en þá framreiðir kaffinefnd FaMos sitt rómaða kaffihlaðborð. Opna húsinu lýkur gjarnan fyrir klukkan 22:30.

Vorboðar

 

Kór eldri borgara í Mosfellsbæ

Vorboðar kór eldri borgara í Mosfellsbæ var stofnaður árið 1990. Fyrsti stjórnandi kórsins var Páll Helgason. Hrönn Helgadóttir tók við af honum og Friðrik Vignir Stefánsson tók við keflinu haustið 2024.

Tilgangur Vorboða er að æfa söng og efla menningar- og félagsstarf eldri borgara.
Kórinn starfar sjálfstætt með styrk frá Mosfellsbæ og með góðum stuðningi FaMos. Kórinn fær frían aðgang að Safnaðarheimili Lágafellssóknar til söngæfinga.

Vorboðar taka þátt í samstarfi fimm kóra. Samstarfið felst í því að halda kóramót á vorin, til skiptis í bæjarfélögum kóranna.