Fyrsta Opna hús FaMos á þessum vetri var haldið í Hlégarði 12. október. Hljómsveitin Altó skemmti okkur og spiluðu þau gömlu góðu slagarana frá bítla árunum. Við vorum um 70 í salnum og tók okkar fólk góðan þátt í skemmtuninni á dansgólfinu. Þar sáust margir frábærir dansarar, sem engu spori hafa gleymt frá því í gamla daga. Konurnar voru í miklum meirihluta.