Fréttir -

Námskeið í tálgun og útskurði – Karlar í skúrum

Námskeið í tálgun og útskurði – Karlar í skúrum

Karlar í skúrum Mosfellsbæ: Námskeið í útskurði - Námskeið í tálgun. Kennt einu sinni í viku á miðvikudögum frá 17:00 til 20:00 í fjórar vikur, alls 12 kennslustundir. Væntanlega verða síðan haldin framhaldsnámskeið. Námskeiðsgjald er kr. 15.000,- og er efni og lán á verkfærum innifalið. Námskeiðin hefjast miðvikudaginn 25.október. Konur eru velkomnar á námskeiðið.

Karlar í skúrum Mosfellsbæ:
Námskeið í útskurði – Námskeið í tálgun

Námskeiðin hefjast miðvikudaginn 25.október

Kennt einu sinni í viku á miðvikudögum frá 17:00 til 20:00 í fjórar vikur, alls 12 kennslustundir. Væntanlega verða síðan haldin framhaldsnámskeið.

Námskeiðsgjald er kr. 15.000,- og er efni og lán á verkfærum innifalið.

Konur eru velkomnar á námskeiðið.

Skráning skal berast í síðasta lagi föstudaginn 20.október.

Leiðbeinendur verða Páll Steinþórsson, Guðmundur Birgir Salómonsson og Ingi S. Þórðarson.

Páll Steinþórsson tekur við skráningum á námskeiðin í síma 898-3693 eða tölvupóstfang pallst@simnet.is

Námskeiðið fer fram í húsnæði Karlar í skúrum Mosfellsbæ að Skálahlíð 7A, Litlahlíð, Mosfellsbæ.

Erum á Facebook “Karlar í skúrum Mosfellsbæ.”

Fleiri fréttir

Jólafrí félagsstarfsins

Við opnum aftur í Brúarlandi mánudaginn 6. janúar 2025 kl. 11:00 og fyrsti hittingur í Hlégarði verður 14. janúar. Hlökkum til að sjá ykkur aftur á nýju ári og við óskum ykkur gleðilegra jóla og þökkum samfylgdina á árinu sem er að líða.

Nánar »

Innleiðing rafrænna félagsskírteina FaMos

Stjórn félagsins hefur verið að vinna að því að tekin verði upp rafræn félagsskírteini hjá FaMos fyrir árið 2025.

Allir félagsmenn sem hafa snjallsíma fá félagsskírteini sín send í símann nokkrum dögum eftir að viðkomandi hefur greitt félagsgjaldið fyrir árið 2025.

Nánar »

Svipmyndir frá opnu húsi

Menningar og skemmtinefndin hélt
Opið hús, Aðventukvöld, í Hlégarði 9.des. Vorboðarnir undir stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar skemmtu okkur og fluttu okkur jólasálma og ýmis jólalög við undirleik Helga Hannessonar. Alls voru rúmlega 130 manns í Hlégarði að Vorboðunum meðtöldum og komust allir í jólaskap. Kaffinefndin bar svo fram sitt rómaða kaffihlaðborð.

Nánar »
Scroll to Top