Síðasta Opna húsið á þessum vetri var í Hlégarði í gærkvöldi. Nemendur Listaskóla Mosfellsbæjar þau Katla, Lea Björk, Guðjón og Íris skemmtu okkur með tónlist og söng við undileik kennaranna Lilju og Sigurjóns. Dagskráin var fjölbreytt frá Jóhanni Sebastian Bach til Elvis Prestleys og flutningurinn frábær. Við vorum um 65 í salnum og nutum tónlistarinnar og söngsins í botn. Frábærir upprennandi tónlistarmenn.