Fréttir
Jólafrí félagsstarfsins
Innleiðing rafrænna félagsskírteina FaMos
Sæl öll félagar FaMos,Stjórn félagsins hefur verið að vinna að því að tekin verði upp rafræn félagsskírteini hjá FaMos...
Félagsfundur Famos
Félagsfundur Famos
Félag eldri borgara í Mosfellsbæ boðar til fundar í Hlégarði miðvikudaginn 11. mars kl. 16:00 Kaffi á könnunni. Kveðja stjórnin
Línudans námskeið
Línudans námskeið í Hlégarði þriðjudaga kl 15:00. Nýtt tímabil 3.mars - 28.apríl. Námskeiðið kostar 5000kr, greiðist í fyrsta tíma (ekki posi). Kennari: Inga
GERVIGREIND
Fræðslufundur í Hlégarði miðvikudaginn 18. feb. 2026klukkan 13:00 Stefán Atli Rúnarsson kemur og fræðir okkur um gervigreind.
Aðalfundur FaMos 2026
Aðalfundur FaMos, félags aldraðra í Mosfellsbæ verður haldinn mánudaginn 16.febrúar kl. 19:00 í Hlégarði. Eftir hefðbundin aðalfundarstörf mætir danshópurinn "Sporið" og sýnir þjóðdansa.
Tilkynning frá FaMos
FaMos minnir félaga að greiða félagsgjöldin sem fyrst. Krafa hefur verið send í heimabanka og þegar hún hefur verið greidd er félagskortið sent rafrænt í tölvupósti. Þau sem ekki eru tölvuvön geta fengið félagskortið afhent.
Stjórnarmenn
Félag aldraðra í Mosfellsbæ auglýsir eftir stjórnarmönnum. FaMos auglýsir eftir áhugasömu fólki til að taka þátt í stjórn félagsins. Þar er um að ræða embætti formanns og almenna stjórnarmenn. Þau sem hafa áhuga eða vilja kynna sér málið sendi tölvupóst á famos@famos.is. Stjórnin
Íþróttanefnd dagskrá vorönn 2026
Heilsa og Hugur - Leikfimi fyrir 60+ Staður: Úti og inni í íþróttahúsinu að Varmá. 11 vikna námskeið, 3 sinnum í viku. Hefst 12. janúar. Mánudaga: Allir hópar saman í Fellinu kl. 09.30. Þriðjudaga og föstudaga: Kl. 8.00, 9.00, 10.00 og 11.00. Verð: Kr. 18.000 fyrir tímabilið.
Myndlistarnámskeið – 29. jan
Námskeiðið er ætlað byrjendum og líka þeim sem lengra eru komnir. Fólk mætir með sína striga, liti (olíu- eða akríl) og pensla, en trönur og litir til að bjarga sér eru á staðnum.
Opið hús / menningarkvöld mánudaginn 8. desember
Opið hús / menningarkvöld verður mánudaginn 8. desember í Hlégarði kl. 20:00. Vorboðarnir syngja, Herdís Þorgeirsdóttir og vinkonur flytja stutt leikrit og kaffinefndin verður með sitt rómaða kaffihlaðborð. Ókeypis aðgangur fyrir FaMos félaga..
Gaman saman verður í borðsal Hlaðhömrum 2 þann 27. nóvember
Gaman saman verður haldið í borðsalnum að Hlaðhömrum 2 fimmtudaginn 27. nóvember (síðasta fyrir jól). Helgi R. Einarsson tekur á móti leikskólabörnum og spilar og skemmtir fólki 🙂 - Allir velkomnir, það er gaman saman.
Handunnar vörur í Basar búðinni Brúarlandi
Enn er eftir fullt af fallegum handunnum vörum hjá okkur í Basar búðinni Brúarlandi Háholti 3. Opið mánudaga - fimmtudaga kl. 11:00 - 16:00 og á föstudögum kl. 13:00 - 16:00. Fallegar handunnar vörur á góðu verði.
Opinn kynningarfundur – Hagir og líðan aldraðra
Félagsmálaráðuneytið, velferðarsvið Reykjavíkurborgar og LEB – Landssamband eldri borgara fengu Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands til að gera fyrir sig könnun á högum og líðan aldraðra á Íslandi 2020. Rafræn kynning á niðurstöðum könnunarinnar verður haldin 7. apríl nk. kl. 13.
Kosningar 2021 – Málefni eldri borgara LEB
Komið þið sæl,
Undanfarið hefur hópur á vegum Landssambands eldri borgara rætt hvernig við getum haft áhrif á að okkar málefni fái eðlilegan hljómgrunn í næstu alþingiskosningum. Send var út áskorun um að eldri borgarar gæfu kost á sér ofarlega á framboðslistum. Það hefur þegar vakið nokkur viðbrögð. Nú hafa verið sett fram áhersluatriði fyrir kosningarnar. Við vonumst til að þið ræðið þessi atriði við frambjóðendur fram að kosningum.
Bestu kveðjur,
Ingólfur Hrólfsson, formaður FaMos
Íþróttastarf sett á ís
Vegna hertra sóttvarnaaðgerða fellur öll starfsemi á vegum íþróttanefndar FaMos niður næstu þrjár vikur. Um er að ræða vatnsleikfimi, ringó, boccia, dansleikfimi, línudans, púttæfingar og leikfimiæfingar í World Class. Nánar verður greint frá framhaldinu þegar þar að kemur.
Nýr opnunartími í félagsstarfinu
Félagsstarfið Hlaðhömrum 2 er komið með nýjan opnunartíma og er framvegis opið mánudaga til fimmtudaga á milli kl. 11:00 - 16:00 og á föstudögum frá kl. 13:00 - 16:00.
Tilkynning frá íþróttanefnd FaMos
FaMos félagar!
Nú byrjum við starfsemina aftur eftir langt hlé. Pútttímar, dansleikfimi, boccia, ringó og gönguhópur - allt að hefjast aftur.
Karlar í skúrum Mosfellsbæ
Fjölmennt var 24. febrúar sl. á útskurðar- og tálgunarkynningu. Félagar sýndu listaverk sín og verkfæri.
Síðan var ákveðið að vera með útskurð og tálgun á fimmtudögum kl. 13-16, byrjar 4. mars, engin skráning bara mæta.
Leikfimi í World Class
Elsku gleðisprengjur! Nýliðar eru á mánudögum og miðvikudögum kl. 09:30. Framhaldstímar eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 09:30, 10:30 og 11:30.
Göngugarpar í Mosfellsbæ – FUNDUR
Nú ætlum við að blása til fundar kl 13:00 miðvikudaginn 17.feb í FELLINU Varmá og reyna að fara skipuleggja aftur reglulegar göngur. Nú þar sem Covid hefur minnkað finnst okkur mikilvægt að reyna að koma þessu aftur í fast horf og viljum við því fá ykkur á staðinn til að ræða málin.
Karlar í Skúrum
Þann 17. september sl. heimsótti formaður FaMos ásamt fleiri stjórnarmönnum ofannefnda karla. Gestir komu færandi hendi, þ.e. höfðu meðferðis nýja kaffivél ásamt tilheyrandi borðbúnaði.
Velkomin að Varmá
Fjölnota íþróttahúsið okkar stendur öllum bæjarbúum opið til göngu og léttrar hreyfingar alla virka daga frá kl. 08:00 - 14:00. Við hvetjum alla Mosfellinga, unga sem aldna, til að nýta sér aðstöðuna sér til heilsubótar.
Kennslubæklingar fyrir spjaldtölvur frá LEB
Kennslubæklingar fyrir spjaldtölvur frá LEB, eru nú aðgengilegir endurgjaldslaust á vef FaMos undir flipanum skjalasafn.
Bæklingarnir eru fyrir Ipad annars vegar og Android stýrikerfi hins vegar. Android er í nánast öllum tölvum sem ekki eru af Ipad gerð.
Karlar í Skúrum Mosfellsbæ
Ný stjórn kom saman í morgun, 10.11.2020, og gekk frá formlegri stofnun félagsins "Karlar í Skúrum Mosfellsbæ."









