Fréttir -

Endurminningaleikhús – námskeið

Endurminningaleikhús – námskeið

Þann 22. Janúar næstkomandi hefst námskeið í endurminningaleikhúsi. - Við endurtökum leikinn!

[fusion_builder_container hundred_percent=”no” equal_height_columns=”no” menu_anchor=”” hide_on_mobile=”small-visibility,medium-visibility,large-visibility” class=”” id=”” background_color=”” background_image=”” background_position=”center center” background_repeat=”no-repeat” fade=”no” background_parallax=”none” parallax_speed=”0.3″ video_mp4=”” video_webm=”” video_ogv=”” video_url=”” video_aspect_ratio=”16:9″ video_loop=”yes” video_mute=”yes” overlay_color=”” video_preview_image=”” border_size=”” border_color=”” border_style=”solid” padding_top=”” padding_bottom=”” padding_left=”” padding_right=””][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=”1_1″ layout=”1_1″ background_position=”left top” background_color=”” border_size=”” border_color=”” border_style=”solid” border_position=”all” spacing=”yes” background_image=”” background_repeat=”no-repeat” padding_top=”” padding_right=”” padding_bottom=”” padding_left=”” margin_top=”0px” margin_bottom=”0px” class=”” id=”” animation_type=”” animation_speed=”0.3″ animation_direction=”left” hide_on_mobile=”small-visibility,medium-visibility,large-visibility” center_content=”no” last=”no” min_height=”” hover_type=”none” link=””][fusion_text columns=”” column_min_width=”” column_spacing=”” rule_style=”default” rule_size=”” rule_color=”” hide_on_mobile=”small-visibility,medium-visibility,large-visibility” class=”” id=”” animation_type=”” animation_direction=”left” animation_speed=”0.3″ animation_offset=””]

Endurminningarleikhús – námskeið

Nú endurtökum við leikinn!

Þann 22. Janúar næstkomandi hefst námskeið í endurminningaleikhúsi.  Andrea Katrín Guðmundsdóttir, leikkona og leikstjóri, í samvinnu við Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ og FaMos, stóð fyrir samskonar námskeiði í lok árs 2019 sem hlaut jákvæðar undirtektir bæði þátttakenda og áhorfenda.

Staður:  Íþróttasalurinn Eirhömrum.
Stund:  Miðvikudagar og föstudagar kl. 13-14:30.  12 skipti samtals.
Þátttökugjald er 8.000 kr. fyrir námskeiðið.

Á námskeiðinu munu þátttakendur rifja upp gamlar minningar með því að spjalla saman, hlusta á tónlist, gera leiklistaræfingar og margt fleira skemmtilegt.  Markmið námskeiðsins er fyrst og fremst að hafa gaman í góðum félagsskap og að fá tækifæri til að rifja upp gamla tíma.  Námskeiðið lýkur svo með leiksýningu, þar sem þátttakendur deila endurminningum sínum með áhorfendum.

Elva Björg Pálsdóttir, forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara, tekur á móti skráningum og gefur allar nánari upplýsingar.  Hægt er að skrá sig í þjónustumiðstöðinni, hringja í síma 698-0090 og 568-8014 eða senda tölvupóst á netfangið elvab@famos.is

Endilega skráið ykkur sem fyrst  takmörkuð pláss í boði.

[/fusion_text][/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]

Fleiri fréttir

Aðalfundur FaMos 2026

Aðalfundur FaMos, félags aldraðra í Mosfellsbæ verður haldinn mánudaginn 16.febrúar kl. 19:00 í Hlégarði.
Eftir hefðbundin aðalfundarstörf mætir danshópurinn “Sporið” og sýnir þjóðdansa.

Nánar »

Stjórnarmenn

Félag aldraðra í Mosfellsbæ auglýsir eftir stjórnarmönnum.
FaMos auglýsir eftir áhugasömu fólki til að taka þátt í stjórn félagsins. Þar er um að ræða embætti formanns og almenna stjórnarmenn. Þau sem hafa áhuga eða vilja kynna sér málið sendi tölvupóst á famos@famos.is.

Stjórnin

Nánar »

Tilkynning frá FaMos

FaMos minnir félaga að greiða félagsgjöldin sem fyrst. Krafa hefur verið send í heimabanka og þegar hún hefur verið greidd er félagskortið sent rafrænt í tölvupósti. Þau sem ekki eru tölvuvön geta fengið félagskortið afhent. Þá er nauðsynlegt að panta það og fá það afhent á skrifstofu FaMos. Ef krafan hefur ekki borist í heimabanka þarf að fara inn á heimasíðuna www.famos.is og skrá sig.
Stjórnin

Nánar »

Myndir frá Opnu húsi í Hlégarði 12. janúar

Fyrsta Opna hús FaMos á þessu ári var haldið í Hlégarði 12. janúar. Hljómsveitin Blær skemmti okkur og spilaði ýmis danslög. Við vorum um 60 í salnum og tók okkar fólk góðan þátt í skemmtuninni á dansgólfinu. Þar sáust margir frábærir dansarar, sem engu spori hafa gleymt frá því í gamla daga.

Nánar »
Scroll to Top