Basar 2022
Hinn árlegi basar á vegum félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ verður haldinn laugardaginn 19. nóv kl 13:30-16:00 inn í félagsstarfinu Hlaðhömrum 2.
Fallegar handunnar vörur á afar góðu verði og úrvalið fjölbreytt. Eftir basarinn verða þær vörur sem eftir eru til sölu í basarbúðinni okkar í félagsstarfinu alla virka daga frá 11:00-16:00.
Allur ágóði af seldum vörum fer til þeirra sem þurfa aðstoð í bænum okkar.posi á staðnum
Kór eldri borgara Vorboðarnir syngja fyrir gesti.
Kaffisala á vegum kirkjukórsins verður í matsal.
Hlökkum til að sjá sem flesta á basarnum
STYRKJUM GOTT MÁLEFNI