Opið hús / Menningarkvöld – Aðventuhátíð
Opið hús/menningarkvöld verður mánudaginn 11. desember í Hlégarði klukkan 20:00. Vorboðarnir undir stjórn Hrannar Helgadóttur syngja og koma okkur í jólaskap við undirleik Helga Hannessonar. Herdís Þorgeirsdóttir mun síðan flytja okkur jólasögu.
Kaffinefndin verður svo með sitt rómaða kaffihlaðborð að venju.
Aðgangseyrir er kr. 2.000 (posi er ekki á staðnum)
Með kveðju
Menningar- og skemmtinefnd FaMos