Fréttir -

Tilkynning frá FaMos

Tilkynning frá FaMos

FaMos minnir félaga að greiða félagsgjöldin sem fyrst. Krafa hefur verið send í heimabanka og þegar hún hefur verið greidd er félagskortið sent rafrænt í tölvupósti. Þau sem ekki eru tölvuvön geta fengið félagskortið afhent. Þá er nauðsynlegt að panta það og fá það afhent á skrifstofu FaMos. Ef krafan hefur ekki borist í heimabanka þarf að fara inn á heimasíðuna www.famos.is og skrá sig. Stjórnin

Fleiri fréttir

Stjórnarmenn

Félag aldraðra í Mosfellsbæ auglýsir eftir stjórnarmönnum.
FaMos auglýsir eftir áhugasömu fólki til að taka þátt í stjórn félagsins. Þar er um að ræða embætti formanns og almenna stjórnarmenn. Þau sem hafa áhuga eða vilja kynna sér málið sendi tölvupóst á famos@famos.is.

Stjórnin

Nánar »

Tilkynning frá FaMos

FaMos minnir félaga að greiða félagsgjöldin sem fyrst. Krafa hefur verið send í heimabanka og þegar hún hefur verið greidd er félagskortið sent rafrænt í tölvupósti. Þau sem ekki eru tölvuvön geta fengið félagskortið afhent. Þá er nauðsynlegt að panta það og fá það afhent á skrifstofu FaMos. Ef krafan hefur ekki borist í heimabanka þarf að fara inn á heimasíðuna www.famos.is og skrá sig.
Stjórnin

Nánar »

Myndir frá Opnu húsi í Hlégarði 12. janúar

Fyrsta Opna hús FaMos á þessu ári var haldið í Hlégarði 12. janúar. Hljómsveitin Blær skemmti okkur og spilaði ýmis danslög. Við vorum um 60 í salnum og tók okkar fólk góðan þátt í skemmtuninni á dansgólfinu. Þar sáust margir frábærir dansarar, sem engu spori hafa gleymt frá því í gamla daga.

Nánar »

FRÆÐSLUFUNDUR – Fræðslunefnd FaMos

Yfirskrift: Hvað getum við gert sjálf til að viðhalda góðri heilsu út ævina?
Fyrirlesari: Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir iðjuþjálfi heldur fræðsluerindi fyrir eldri borgara í Mosfellsbæ.
Fundurinn er öllum opinn
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 klukkan 16:30.
Staðsetning: Í Hlégarði.

Nánar »
Scroll to Top