Fréttasafn
Fréttasafn FaMos – Hvað er á döfinni
Ferðir
Ferðir á vegum FaMos.
Hreyfing 60+
Hreyfing fyrir 60+ Famos
Fréttir úr starfinu
Ringó þriðjudaga og fimmtudaga
Vertu með okkur í Ringó þriðjudaga k. 12:10 og fimmtudaga kl. 11:30. Frábær hreyfing og kostar ekkert að vera með 🙂
Tiffanys gler / Mosaik vinnustofa á þriðjudögum
Opið er í vinnustofunni frá kl. 11:30 - 15:00. Leiðbeinandi er Guðbjörg Stefánsdóttir. Öll áhöld og efni eru á staðnum og seld gegn vægu gjaldi.
Útsaumsklúbbur hefst 17. janúar 2024
Ef þú hefur gaman af útsaum, bucilla, applekering eða bara hverju sem tengist útsaumi þá vertu velkomin. Alla miðvikudaga frá kl. 12:30.
Sveitaball 17. janúar kl. 19:30 – 22:30
Dansiball verður haldið í Hlégarði á vegum FaMos og Hlégarðs 17. janúar. Komið og rifjið upp gamla takta og skemmtum okkur saman. Aðgangseyrir kr. 2000.
Spjallhópur fræðslunefndar FaMos á fimmtudögum kl. 14:30
Fræðslunefnd FaMos býður þér þátttöku í spjallhóp á fimmtödögum kl. 14:30 á Hlaðhömrum 2. Markmiðið er að fá eldri borgara sem vilja rjúfa félagslega einangrun til að taka þátt í spjallhópi. Hugmyndin er að hópurinn hittist vikulega í fimm skipti.
Hittumst í Hlégarði alla þriðjudaga mili kl. 13:00 – 15:00
Allir velkomnir í samveru á öllum aldri, alltaf kaffi á könnunni og góður félagsskapur. Hlökkum til að sjá þig!














