Fréttasafn
Fréttasafn FaMos – Hvað er á döfinni
Ferðir
Ferðir á vegum FaMos.
Hreyfing 60+
Hreyfing fyrir 60+ Famos
Fréttir úr starfinu
Opið hús / Menningarkvöld – Aðventuhátíð
Opið hús/menningarkvöld verður mánudaginn 11. desember í Hlégarði klukkan 20:00. Vorboðarnir undir stjórn Hrannar Helgadóttur syngja
og koma okkur í jólaskap við undirleik Helga Hannessonar.
Karlar í skúrum í Mosfellsbæ – Nýtt námskeið að hefjast
Karlar í skúrum Mosfellsbæ: - Nýtt námskeið hefst miðvikudaginn 22. nóvember. Kennt einu sinni í viku á miðvikudögum frá 17:00 til 20:00 í fjórar vikur, alls 12 kennslustundir. Námskeiðsgjald er kr. 15.000,- og er efni og lán á verkfærum innifalið. Konur eru velkomnar á námskeiðið.
Bankinn Bistro – Hádegisverðartilboð
Bankinn Bistro býður félögum í FAMOS tilboð á hádegismat á milli 11:30 – 14:00 á aðeins 1.990 kr.
Námskeið í tálgun og útskurði – Karlar í skúrum
Karlar í skúrum Mosfellsbæ: Námskeið í útskurði - Námskeið í tálgun. Kennt einu sinni í viku á miðvikudögum frá 17:00 til 20:00 í fjórar vikur, alls 12 kennslustundir. Væntanlega verða síðan haldin framhaldsnámskeið.
Námskeiðsgjald er kr. 15.000,- og er efni og lán á verkfærum innifalið. Námskeiðin hefjast miðvikudaginn 25.október. Konur eru velkomnar á námskeiðið.
Opið hús í Hlégarði 9. október kl. 20
Fyrsta Opna hús / menningarkvöld vetrarins verður í Hlégarði mánudaginn 9. október kl. 20:00. Þar mun H&M dúettinn (Heiða og Matthías) flytja þessi gömlu góðu og hvetja okkur til að taka vel undir þegar við á. Í lokin verða flutt nokkur danslög fyrir þá sem vilja taka nokkur lauflétt spor.
Pútt æfingar
Fyrir alla meðlimi Félags eldri borgara í Mosfellsbæ þeim að kostnaðarlausu. Á mánudögum kl. 11 í Golfskálanum, neðri hæð. Æðarhöfða 35, Mosfellsbæ.














