Fréttasafn
Fréttasafn FaMos – Hvað er á döfinni
Ferðir
Ferðir á vegum FaMos.
Hreyfing 60+
Hreyfing fyrir 60+ Famos
Fréttir úr starfinu
Námskeið í tálgun og útskurði – Karlar í skúrum
Karlar í skúrum Mosfellsbæ: Námskeið í útskurði – Námskeið í tálgun. Kennt einu sinni í viku á miðvikudögum frá 17:00 til 20:00 í fjórar vikur, alls 12 kennslustundir. Væntanlega verða síðan haldin framhaldsnámskeið.
Námskeiðsgjald er kr. 15.000,- og er efni og lán á verkfærum innifalið. Námskeiðin hefjast miðvikudaginn 25.október. Konur eru velkomnar á námskeiðið.
Opið hús í Hlégarði 9. október kl. 20
Fyrsta Opna hús / menningarkvöld vetrarins verður í Hlégarði mánudaginn 9. október kl. 20:00. Þar mun H&M dúettinn (Heiða og Matthías) flytja þessi gömlu góðu og hvetja okkur til að taka vel undir þegar við á. Í lokin verða flutt nokkur danslög fyrir þá sem vilja taka nokkur lauflétt spor.
Pútt æfingar
Fyrir alla meðlimi Félags eldri borgara í Mosfellsbæ þeim að kostnaðarlausu. Á mánudögum kl. 11 í Golfskálanum, neðri hæð. Æðarhöfða 35, Mosfellsbæ.
Fyrirlestur um heilabilun
Fimmtudaginn 21. september kl. 14-16 í safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3.
Hittumst í Hlégarði á þriðjudögum 13:00 – 15:00
Allir velkomnir í samveru á öllum aldri, alltaf kaffi á könnunni og góður félagsskapur. Karlar í Skúrum ætla að sýna okkur sitt handverk næsta þriðjudag 19. september :))
Íþróttanefnd FaMos – Dagskrá haustannar 2023
Hugur og Heilsa leikfimi úti og inni í íþróttahúsinu að Varmá fyrir 60+ – Verð fyrir tímabilið er kr. 18.000.- hefst 4.sept.














