Félagar sem verða 85 ára á árinu og eldri eru gjaldfrjálsir hvað félagsgjöld varðar. Nokkrum dögum eftir að greiðsla félagsgjalds berst til FaMos fær viðkomandi sent félagsskírteinið í tölvupósti sem hann svo færir inn í “veskið” (Wallet) í snjallsíma sínum. Leiðbeiningar um það ferli má finna hér á heimasíðu FaMos. Á forsíðu er hnappur merktur “UPPLÝSINGAR”. Þar undir eru nokkrir hnappar m.a. “Leiðbeiningar um rafræn félagsskírteini.” Þar eru upplýsingar um hvernig skírteinin eru sett upp í símana. Þeir félagar sem þurfa aðstoð (og geta ekki fengið hana hjá vinum eða ættingjum) geta komið á skrifstofu FaMos í Brúarlandi fimmtudagana 23.janúar, 30.janúar.eða 6.febr. kl. 15:00 til 16.00. Þeir félagar sem þurfa á því að halda að fá útprentuð félagsskírteini geta komið á skrifstofu FaMos á sömu tímum og hér að ofan er tilgreindur.
Tilkynning til félagsmanna FaMos varðandi félagsskírteini
Tilkynning til félagsmanna FaMos varðandi félagsskírteini
Tilkynning til félagsmanna FaMos um nýtt fyrirkomulag á dreifingu félagsskírteina. Nú í vikunni verða kröfur um greiðslu félagsgjalda sendar í heimabanka félagsmanna FaMos.
Famos fréttir
Félagsfundur Famos
Félagsfundur FamosFélag eldri borgara í Mosfellsbæ boðar til fundar í Hlégarði miðvikudaginn 11. mars kl. 16:00...
Línudans námskeið
Línudans námskeið í Hlégarði þriðjudaga kl 15:00Nýtt tímabil: 3. mars – 28. aprílNámskeiðið kostar 5000kr, greiðist...
GERVIGREIND
GERVIGREINDFræðslufundur í Hlégarði miðvikudaginn 18. feb. 2026klukkan 13:00Stefán Atli Rúnarsson kemur og fræðir...