Félagar sem verða 85 ára á árinu og eldri eru gjaldfrjálsir hvað félagsgjöld varðar. Nokkrum dögum eftir að greiðsla félagsgjalds berst til FaMos fær viðkomandi sent félagsskírteinið í tölvupósti sem hann svo færir inn í “veskið” (Wallet) í snjallsíma sínum. Leiðbeiningar um það ferli má finna hér á heimasíðu FaMos. Á forsíðu er hnappur merktur “UPPLÝSINGAR”. Þar undir eru nokkrir hnappar m.a. “Leiðbeiningar um rafræn félagsskírteini.” Þar eru upplýsingar um hvernig skírteinin eru sett upp í símana. Þeir félagar sem þurfa aðstoð (og geta ekki fengið hana hjá vinum eða ættingjum) geta komið á skrifstofu FaMos í Brúarlandi fimmtudagana 23.janúar, 30.janúar.eða 6.febr. kl. 15:00 til 16.00. Þeir félagar sem þurfa á því að halda að fá útprentuð félagsskírteini geta komið á skrifstofu FaMos á sömu tímum og hér að ofan er tilgreindur.
Tilkynning til félagsmanna FaMos varðandi félagsskírteini
Tilkynning til félagsmanna FaMos varðandi félagsskírteini
Tilkynning til félagsmanna FaMos um nýtt fyrirkomulag á dreifingu félagsskírteina. Nú í vikunni verða kröfur um greiðslu félagsgjalda sendar í heimabanka félagsmanna FaMos.
Famos fréttir
Opið hús / menningarkvöld 2026 í Hlégarði
Alto – Aldnir gefa tóninn 🎶 Fyrsta Opna húsið / menningarkvöld vetrarins 2026 verður í Hlégarði mánudaginn 12. október...
Sund í Lágafellslaug
Minnum á sundtímana í Lágafellslaug Fyrir þá sem eru skráðir í Sundtímana í Lágafellslaug eru tímarnir eftirfarandi:...
Íþróttanefnd FaMos – Dagskrá haustannar 2026
Íþróttanefnd FaMos – Dagskrá haustannar 2026 Hreyfing – Heilsa – Félagsskapur – Gleði Íþróttanefnd FaMos býður upp á...