FERÐIR FAMOS: ELDVIRKNI – NJÁLA – DALIRNIR/FELLSSTRÖND
FAMOS efnir til ferðar á Hvolsvöll 27.maí til að sækja verðlaunaða sýningu um eld- og skjálftavirkni á Íslandi – LAVAsetrinu (lava.is). Eftir hádegisverð, verður haldið á Njáluslóðir í Fljótshlíð og víðar undir leiðsögn Ragnhildar Richter kennara og íslenskufræðings.
Bókanir fyrir rúmlega 40 félaga hefjast í síðustu viku í mars og er áætlað að ferðagjald nemi nálægt 13.000 kr. (aðgangseyrir, leiðsögn, léttur hádegisverður, síðdegishressing).
Seinni ferðin er tveggja daga ferð.
Farið verður á söguslóðir í Dölunum og nágrenni þ. 28. og 29.júní, með gistingu í ***hótelinu að Laugum í Sælingsdal.
Komið verður við á nokkrum stöðum svo sem Eiríksstöðum, Hjarðarholti, Skarði, Hvammi og Tjaldanesi. Ekið er um græna djúpa Dalina og um Klofning yfir náttúrufagra Skarðsströndina. Fararstjóri er Gísli Einarsson (fjölmiðlungur með fleiru.).
Innifalið í verði: Fararstjórn, gisting, aðgangseyrir, morgunmatur og kvöldverður á hótelinu, tveir léttir hádegisverðið á ferðaleiðum og síðdegissnarl tvisvar sinnum.
Áætlað að ferðagjald pr. félaga verður nálægt 50.000,- fyrir tvíbýli en nær 60.000,- fyrir einbýli.
Bókanir fyrir 36 félaga hefjast 13.apríl 2026.
