Fréttir
Bingó Hlégarði
Þriðjudaginn 19.maí kl. 13:30 verður bingó í Hlégarði. Spjaldið kostar 800kr.- Glæilegir vinningar eins og alltaf, ekki missa af þessu. Allir hjartanlega velkomnir, hlökkum til að sjá ykkur.
Fundur um framboðsmál
Félag aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni (FaMos) boðar til opins fundar með framboðum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar vorið 2026. Þetta er kjörið tækifæri fyrir íbúa til að kynna sér áherslur þeirra flokka sem eru í framboði.
Myndir frá Opnu húsi 13. apríl
Síðasta Opna húsið á þessum vetri var í Hlégarði í gærkvöldi. Nemendur Listaskóla Mosfellsbæjar þau Katla, Lea Björk, Guðjón og Íris skemmtu okkur með tónlist og söng við undileik kennaranna Lilju og Sigurjóns. Dagskráin var fjölbreytt frá Jóhanni Sebastian Bach til Elvis Prestleys og flutningurinn frábær. Við vorum um 65 í salnum og nutum tónlistarinnar og söngsins í botn. Frábærir upprennandi tónlistarmenn.
Opið hús / menningarkvöld 2026
Opið hús / menningarkvöld 2026.
Nemendur Listaskóla Mosfellsbæjar munu skemmta okkur með spili og söng í Hlégarði mánudaginn 13. apríl kl. 20:00.
Aðgangseyrir 2.000 kr. (posi á staðnum)
FERÐIR FAMOS
FAMOS efnir til ferðar á Hvolsvöll 27.maí til að sækja verðlaunaða sýningu um eld- og skjálftavirkni á Íslandi – LAVA setrinu (lava.is). Eftir hádegisverð, verður haldið á Njáluslóðir í Fljótshlíð og víðar undir leiðsögn Ragnhildar Richter kennara og íslenskufræðings.
Heilsa og hugur
Vornámskeið frá 13. apríl til 22. maí.
6 vikur kosta 12.000kr.
Upplýsingar og skráning í síma: 845-7490 virka daga milli 10:00 og 12:00.
Endilega verið með 😄😄frábær samvera með frábæru fólki.
–Bestu kveðjur, Íþróttanefnd FaMos–
Menning í mars í Mosfellsbæ
Menning í mars í Mosfellsbæ.
Vorboðar bjóða til opinnar söngæfingar.
Mánudaginn 23.mars kl. 14:00.
Vorboðar, kór eldri borgara í Mosfellsbæ bjóða til opinnar kóræfingar í Safnaðarheimilinu Þverholti 3, 3.hæð.
Kaffi á könnunni, samsöngur með gestum.
Allir hjartanlega velkomnir.
Myndlistarsýning eldri borgara
Nemendur á Listmálunarnámskeiði í Brúarlandi munu halda sýningu á verkum sínum í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar Lágafelli. Sýningin verður opnuð þriðjudaginn 3.mars kl 18:00 og mun standa út mars mánuð. Allir hjartanlega velkomnir!
Félagsfundur Famos
Félagsfundur Famos
Félag eldri borgara í Mosfellsbæ boðar til fundar í Hlégarði miðvikudaginn 11. mars kl. 16:00 Kaffi á könnunni. Kveðja stjórnin
Línudans námskeið
Línudans námskeið í Hlégarði þriðjudaga kl 15:00. Nýtt tímabil 3.mars – 28.apríl. Námskeiðið kostar 5000kr, greiðist í fyrsta tíma (ekki posi). Kennari: Inga
GERVIGREIND
Fræðslufundur í Hlégarði miðvikudaginn 18. feb. 2026klukkan 13:00 Stefán Atli Rúnarsson kemur og fræðir okkur um gervigreind.
Vorsýning Brúarlandi – FRESTAÐ
ATH: Sýningunni frestað vegna framkvæmda. Verður í staðin á bæjarhátíð Mosféllsbæjar.
—-
Sýning verður á listaverkum sem gerð hafa verið í vetur á námskeiðum hjá okkur í félagsstarfinu. Leirmunir, glerverk, postulín, perlur, tiffanys, myndlist og fleira.
Reykjanesskagi – Sumarferð FAMOS 2025
Ferðanefnd FAMOS efnir til sumarferðar fimmtudaginn 19. júní um Reykjanesskagann. Nánari dagskrá, verð og fleira birtist á næstunni. Skráning hefst þegar nær dregur.
Opið hús / menningarkvöld 14. apríl kl. 20
Síðasta Opna húsið/menningarkvöld vetrarins verður í Hlégarði mánudaginn 14. apríl kl. 20:00.
Fræðslufundur í Hlégarði 29. janúar kl. 16:30
Fræðslunefnd FaMos boðar til fræðslufundar í Hlégarði þann 29. janúar nk. kl. 16:30.
Myndir frá opnu húsi í Hlégarði 20. janúar
Menningar og skemmtinefnd hélt opið hús í Hlégarði 20. janúar þar sem mættu ríflega 70 manns.
Tilkynning til félagsmanna FaMos varðandi félagsskírteini
Tilkynning til félagsmanna FaMos um nýtt fyrirkomulag á dreifingu félagsskírteina. Nú í vikunni verða kröfur um greiðslu félagsgjalda sendar í heimabanka félagsmanna FaMos.
Opið hús / menningarkvöld 20. janúar 2025 í Hlégarði
Hefst kl. 20. Kaffinefndin verður með sitt rómaða kaffihlaðborð að venju. Aðgangseyrir er kr. 2.000 (posi verður á staðnum).
Basarhópur Ljósálfa á þriðjudögum kl. 13:00
Basarhópur Ljósálfa hittist alla þriðjudaga kl. 13:00 í Brúarlandi. Allir velkomnir, bæði karlar jafnt sem konur.
Jólafrí félagsstarfsins
Við opnum aftur í Brúarlandi mánudaginn 6. janúar 2025 kl. 11:00 og fyrsti hittingur í Hlégarði verður 14. janúar. Hlökkum til að sjá ykkur aftur á nýju ári og við óskum ykkur gleðilegra jóla og þökkum samfylgdina á árinu sem er að líða.
Innleiðing rafrænna félagsskírteina FaMos
Stjórn félagsins hefur verið að vinna að því að tekin verði upp rafræn félagsskírteini hjá FaMos fyrir árið 2025.
Allir félagsmenn sem hafa snjallsíma fá félagsskírteini sín send í símann nokkrum dögum eftir að viðkomandi hefur greitt félagsgjaldið fyrir árið 2025.
Svipmyndir frá opnu húsi
Menningar og skemmtinefndin hélt
Opið hús, Aðventukvöld, í Hlégarði 9.des. Vorboðarnir undir stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar skemmtu okkur og fluttu okkur jólasálma og ýmis jólalög við undirleik Helga Hannessonar. Alls voru rúmlega 130 manns í Hlégarði að Vorboðunum meðtöldum og komust allir í jólaskap. Kaffinefndin bar svo fram sitt rómaða kaffihlaðborð.
Opið hús – Aðventuhátíð
Opið hús/menningarkvöld verður mánudaginn 9. desember í Hlégarði klukkan 20:00.













