Fréttir -
Fréttir
Fréttir
Fréttir úr starfi FaMos

Leir og kerti
Leir og kerti – 4 skipti – fimmtudagar 12 – 15 í Brúarlandi. Hefst 17. október. Allir velkomnir.

Viltu mála í hóp?
Við ætlum að stofna hóp fyrir þá sem vilja koma saman að mála og fá félagsskap (enginn kennari). Opið í listastofunni Brúarlandi Háholti 3 kl. 12:00-15:00 fimmtudaga. Byrjum 10. okt!

Gaman saman – Ari Trausti Guðmundsson – Grænland
Lítt þekkti nágranninn í austri – Fimmtudagur 3. október kl. 14 – 16 í Safnaðarheimilinu Þverholti 3.

Karlar í skúrum – Nýtt námskeið að hefjast
Kennt einu sinni í viku á miðvikudögum frá 17:00 til 20:00 í 6 vikur, alls 18 kennslustundir.

Opið hús/menningarkvöld 14. október – Delizie Italiane Tríóið
Opið hús mánudaginn 14. október í Hlégarði klukkan 20:00. Þeir voru frábærir í janúar og verða enn betri núna!

Upprifjun á gömlu dönsunum
Ef næg þátttaka fæst þá er fyrirhugað að rifja upp gömlu dansana miðvikudaginn 9. október og fimmtudaginn 10. október kl. 16:00 í Brúarlandi.

Línudans í Hlégarði hefst 8. október
Ef næg þátttaka fæst þá hefst línudans í Hlégarði þann 8. október kl. 15:00 – 16:00.

Hittumst í Hlégjarði
Hittumst í Hlégarði alla þriðjudaga milli kl. 13:00 – 15:00 í vetur. Allir velkomnir í samveru á öllum aldri, alltaf kaffi á könnunni og góður félagsskapur.

Námskeið á vegum Rauða Krossins og fræðslunefndar FAMOS
Nú stendur okkur til boða námskeið á vegum Rauða Krossins fyrir þá sem vilja gerast sjálfboðaliðar og taka þátt í vinaverkefnunum sem þau standa fyrir. Námskeiðið yrði haldið hér í Mosfellsbæ í síðustu viku september eða fyrstu viku í október. Námskeiðið gengur út á að undirbúa sjálfboðaliða fyrir heimsóknirnar, og er kennt af verkefnisstjóra frá Rauða Krossinum í eitt skipti 2 klst. og síðan eitt stutt verkefni á vefnum.

Skapandi bras hópur :)
Hugsum út fyrir boxið alla mánudaga kl. 13:00 Brúarlandi, allur aldur velkominn 🙂

Útsaumsklúbbur
Ef þú hefur gaman af útsaum, bucilla, applekering eða bara hverju sem tengist útsaumi, vertu velkomin alla þriðjudag frá kl. 13:00 í Brúarlandi.

Pokakast – Alla þriðjudaga í Hlégarði
Allir velkomnir, hentar öllum! – Auðveld og skemmtileg íþrótt og kostar ekkert.

Kínaskák í Brúarlandi
Ef þú hefur áhuga á að spila Kínaskák endilega hafðu samband við okkur í Brúarlandi í síma 586 8014 eða á elvab@mos.is, ætlum að reyna að stofna hóp og finna hvaða dagar henta best :))

Ljósálfar – Basarhópur
Vilt þú vera með okkur í hóp að gera fallega muni fyrir basarinn í nóvember? Komdu þá í Brúarland á þriðjudögum kl. 13 og gerum eitthvað fallegt saman.

Kanasta í Hlégarði alla þriðjudaga kl. 13:00 – 15:00
Vertu velkomin að læra nýtt spil, við tökum vel á móti þér.

Ljósálfar – Basarhópur
Vilt þú vera með okkur í hóp að gera fallega muni fyrir basarinn sem verður í nóvember?

Listmálunar námskeið
Námskeið í málun með akríl / olíulitum hefst þriðjudaginn 14. september kl. 14:15 og stendur til 17:15. Námskeiðið er 7 skipti.

Velkomin í Brúarland
Opið verður í Brúarlandi á milli kl. 13:00 og 15:00 laugardaginn 31. ágúst.

