Fréttir úr starfi FaMos

Félag aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni

Fréttir
Fræðslufundur í Hlégarði

Fræðslufundur í Hlégarði

GOTT AÐ ELDAST – Hver er staðan?
Fræðslufundur í Hlégarði
23. september 2026 • kl. 14:00

Endurhæfingarteymi Mosfellsbæjar kynnir stöðu verkefnisins:

Sunna Kristjánsdóttir, stjórnandi teymisins
Guðleif Leifsdóttir, félagsráðgjafi
Lind Freyjudóttir, íþróttafræðingur
Sandra María Filippusdóttir, hjúkrunarfræðingur

Frá Heilsugæslu Mosfellsbæjar:

Jórunn Edda Hafsteinsdóttir,
faststjóri hjúkrunar og svæðisstjóri
Heilsugæslu Mosfellssumdæmis

Kristín Reynisdóttir, sjúkraþjálfi.

FréttirHreyfing 60+
Sund í Lágafellslaug

Sund í Lágafellslaug

Minnum á sundtímana í Lágafellslaug.
Fyrir þá sem eru skráðir í Sundtímana í Lágafellslaug eru tímarnir eftirfarandi:

Mánudagar kl. 14:10
Þriðjudagar kl. 15:15
Miðvikudagar kl. 15:00
Fimmtudagar kl. 13:25

Við biðjum alla um að mæta tímanlega í sinn tíma.

Kveðja, Íþróttanefnd FaMos 💙

Fréttir
Opið hús

Opið hús

Opið hús fyrir eldri fólk í Hlégarði.

Mosfellsbær býður eldri íbúum til opins húss í Hlégarði miðvikudaginn 26. ágúst kl. 14–16.

Á opna húsinu verður kynnt sú þjónusta og þau úrræði sem standa eldri fólki til boða hjá sveitarfélaginu.

📅 Miðvikudagurinn 26. ágúst
🕑 Kl. 14–16
📍 Hlégarður, Háholt 2, Mosfellsbæ

Heitt verður á könnunni og öll eru velkomin!

Fréttir
Sumarfrí

Sumarfrí

Sumarfrí í Brúarlandi – Gleðilegt sumar.
Við lokum í tvær vikur í sumar, frá 27. júlí, og opnum aftur mánudaginn 10. ágúst.
Þangað til er opið á venjulegum tímum:
Mánudaga til fimmtudaga kl. 11:00–16:00
Föstudaga kl. 13:00–16:00

Basar Hlégarði – Sunnudaginn 16. nóvember

Hinn árlegi basar á vegum félagsstarfsins í Mosfellsbæ verður haldinn sunnudaginn 16. nóvember kl. 14:00 – 16:30 í Hlégarði. Fallegar handunnar vörur á afar góðu verði og úrvalið fjölbreytt. Vorboðar syngja og unglingar verða með kaffi og vöfflusölu.

Myndir frá Opnu húsi 13. október

Fyrsta Opna hús vetrarins var í Hlégarði 13. október. Grétar Örvarsson skemmti okkur með dyggri aðstoð saxófónleikarans okkar Hansa Þór Jenssonar. Un hundrað manns mættu og skemmtu sér vel við söng og skemmtisögur Grétars og tókst honum að draga þó nokkra út á dansgólfið. Eftir skemmtunina bar kaffinefndin fram sitt frábæra hlaðborð.

Fræðslufundur Hlégarði 24. sept kl. 16:30

Fræðslunefnd FaMos býður upp á fræðslufund í Hlégarði 24. september nk. Starfsfólk Arion banka fræðir okkur um svikamál og Hrafnkell Óskarsson læknir spjallar um hamingjuna. Fundurinn er öllum opinn.

Samvera í Hlégarði

Verið velkomin að vera með okkur ef þú ert til í að hugsa út fyrir boxið og skapa eitthvað skemmtilegt úr hinu og þessu.