Fréttir úr starfi FaMos

Félag aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni

Fréttir
KLÖRUKAUP

KLÖRUKAUP

KLÖRUKAUP – handverksbúð í Brúarlandi. Háholti 3, Mosfellsbæ, OPINN AUKADAGUR!
Laugardaginn 21. nóvember kl. 13–15:30 (í staðinn fyrir basar)
Gerið góð kaup fyrir jólin! ❤️
Opið mánudag–fimmtudag kl. 11–16
Föstudag kl. 13–16, Hlökkum til að sjá ykkur!

Fréttir
Fræðslufundur í Hlégarði

Fræðslufundur í Hlégarði

GOTT AÐ ELDAST – Hver er staðan?
Fræðslufundur í Hlégarði
23. september 2026 • kl. 14:00

Endurhæfingarteymi Mosfellsbæjar kynnir stöðu verkefnisins:

Sunna Kristjánsdóttir, stjórnandi teymisins
Guðleif Leifsdóttir, félagsráðgjafi
Lind Freyjudóttir, íþróttafræðingur
Sandra María Filippusdóttir, hjúkrunarfræðingur

Frá Heilsugæslu Mosfellsbæjar:

Jórunn Edda Hafsteinsdóttir,
faststjóri hjúkrunar og svæðisstjóri
Heilsugæslu Mosfellssumdæmis

Kristín Reynisdóttir, sjúkraþjálfi.

FréttirHreyfing 60+
Sund í Lágafellslaug

Sund í Lágafellslaug

Minnum á sundtímana í Lágafellslaug.
Fyrir þá sem eru skráðir í Sundtímana í Lágafellslaug eru tímarnir eftirfarandi:

Mánudagar kl. 14:10
Þriðjudagar kl. 15:15
Miðvikudagar kl. 15:00
Fimmtudagar kl. 13:25

Við biðjum alla um að mæta tímanlega í sinn tíma.

Kveðja, Íþróttanefnd FaMos 💙

Opið hús

Opið hús fyrir eldri fólk í Hlégarði.

Mosfellsbær býður eldri íbúum til opins húss í Hlégarði miðvikudaginn 26. ágúst kl. 14–16.

Á opna húsinu verður kynnt sú þjónusta og þau úrræði sem standa eldri fólki til boða hjá sveitarfélaginu.

📅 Miðvikudagurinn 26. ágúst
🕑 Kl. 14–16
📍 Hlégarður, Háholt 2, Mosfellsbæ

Heitt verður á könnunni og öll eru velkomin!

Sumarfrí

Sumarfrí í Brúarlandi – Gleðilegt sumar.
Við lokum í tvær vikur í sumar, frá 27. júlí, og opnum aftur mánudaginn 10. ágúst.
Þangað til er opið á venjulegum tímum:
Mánudaga til fimmtudaga kl. 11:00–16:00
Föstudaga kl. 13:00–16:00

Ljósmyndasýning 2026

Ljósmyndasýning í Brúarlandi.
Allur ágóði rennur til þeirra sem minna mega sín hér í Mosfellsbæ.
Í Brúarlandi stendur yfir ljósmyndasýning í sumar á vegum meðlima Ljósmyndaklúbbs Brúarlands.

Sumarferð 27. maí

Lokaútkall í fyrri sumarferð ársins- til Hvollvallar (Lava Center) og á Njáluslóðir, miðvikudaginn 27.maí kl 09:00 frá Hlégarði.. Ferðanefndin

Ljósmyndasýning

Ljósmyndasýning ljósmyndaklúbbs Brúarlands, hátíðleg opnun 29.maí – kl. 14:00 – Háholti 3.
Skoðaðu fjölbreytt verk félagsmanna.
Allir velkomnir, léttar veitingar.

Bingó Hlégarði

Þriðjudaginn 19.maí kl. 13:30 verður bingó í Hlégarði. Spjaldið kostar 800kr.- Glæilegir vinningar eins og alltaf, ekki missa af þessu. Allir hjartanlega velkomnir, hlökkum til að sjá ykkur.

Fundur um framboðsmál

Félag aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni (FaMos) boðar til opins fundar með framboðum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar vorið 2026. Þetta er kjörið tækifæri fyrir íbúa til að kynna sér áherslur þeirra flokka sem eru í framboði.

Erfðamál

Fundur á vegum FaMos, Dögg Pálsdóttir, lögmaður fræðir okkur um ýmislegt sem varðar erfðir og lagalegt umhverfi þeirra.
Hún mun svara spurningum úr sal.
Fundurinn er öllum opin, kaffi á könnunni.
Miðvikudagur 6. Maí kl.13:00 í Hlégarði.

kveðja,
Fræðslunefnd FaMos

Myndir frá Opnu húsi 13. apríl

Síðasta Opna húsið á þessum vetri var í Hlégarði í gærkvöldi. Nemendur Listaskóla Mosfellsbæjar þau Katla, Lea Björk, Guðjón og Íris skemmtu okkur með tónlist og söng við undileik kennaranna Lilju og Sigurjóns. Dagskráin var fjölbreytt frá Jóhanni Sebastian Bach til Elvis Prestleys og flutningurinn frábær. Við vorum um 65 í salnum og nutum tónlistarinnar og söngsins í botn. Frábærir upprennandi tónlistarmenn.

Opið hús / menningarkvöld 2026

Opið hús / menningarkvöld 2026.
Nemendur Listaskóla Mosfellsbæjar munu skemmta okkur með spili og söng í Hlégarði mánudaginn 13. apríl kl. 20:00.
Aðgangseyrir 2.000 kr. (posi á staðnum)

FERÐIR FAMOS

FAMOS efnir til ferðar á Hvolsvöll 27.maí til að sækja verðlaunaða sýningu um eld- og skjálftavirkni á Íslandi – LAVA setrinu (lava.is). Eftir hádegisverð, verður haldið á Njáluslóðir í Fljótshlíð og víðar undir leiðsögn Ragnhildar Richter kennara og íslenskufræðings.