Fréttir úr starfi FaMos
Félag aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni
Golf á Hlíðarvelli
PÚTT – Byrjar 28. September, mánudaga og fimmtudaga kl 10:45. Golfskálinn á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ.
Fræðslufundur í Hlégarði
GOTT AÐ ELDAST – Hver er staðan?
Fræðslufundur í Hlégarði
23. september 2026 • kl. 14:00
Endurhæfingarteymi Mosfellsbæjar kynnir stöðu verkefnisins:
Sunna Kristjánsdóttir, stjórnandi teymisins
Guðleif Leifsdóttir, félagsráðgjafi
Lind Freyjudóttir, íþróttafræðingur
Sandra María Filippusdóttir, hjúkrunarfræðingur
Frá Heilsugæslu Mosfellsbæjar:
Jórunn Edda Hafsteinsdóttir,
faststjóri hjúkrunar og svæðisstjóri
Heilsugæslu Mosfellssumdæmis
Kristín Reynisdóttir, sjúkraþjálfi.
Opið hús / menningarkvöld 2026 í Hlégarði
Alto – Aldnir gefa tóninn 🎶
Fyrsta Opna húsið / menningarkvöld vetrarins 2026 verður í Hlégarði mánudaginn 12. október kl. 20:00.
Öldungarnir sjö og Edda í hljómsveitinni Alto ætla að skemmta gestum með fjölbreyttum lögum – allt frá bítlatímanum til dagsins í dag – og jafnvel verður stiginn dans á gólfinu! 💃🕺
Sund í Lágafellslaug
Minnum á sundtímana í Lágafellslaug.
Fyrir þá sem eru skráðir í Sundtímana í Lágafellslaug eru tímarnir eftirfarandi:
Mánudagar kl. 14:10
Þriðjudagar kl. 15:15
Miðvikudagar kl. 15:00
Fimmtudagar kl. 13:25
Við biðjum alla um að mæta tímanlega í sinn tíma.
Kveðja, Íþróttanefnd FaMos 💙
Íþróttanefnd FaMos – Dagskrá haustannar 2026
Íþróttanefnd FaMos – Dagskrá haustannar 2026. Íþróttanefnd FaMos býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir haustið 2026. Allir eru velkomnir að taka þátt – komdu með og vertu með! Hreyfing – Heilsa – Félagsskapur – Gleði
Opið hús
Opið hús fyrir eldri fólk í Hlégarði.
Mosfellsbær býður eldri íbúum til opins húss í Hlégarði miðvikudaginn 26. ágúst kl. 14–16.
Á opna húsinu verður kynnt sú þjónusta og þau úrræði sem standa eldri fólki til boða hjá sveitarfélaginu.
📅 Miðvikudagurinn 26. ágúst
🕑 Kl. 14–16
📍 Hlégarður, Háholt 2, Mosfellsbæ
Heitt verður á könnunni og öll eru velkomin!
Ljósmyndasýning 2026
Ljósmyndasýning í Brúarlandi.
Allur ágóði rennur til þeirra sem minna mega sín hér í Mosfellsbæ.
Í Brúarlandi stendur yfir ljósmyndasýning í sumar á vegum meðlima Ljósmyndaklúbbs Brúarlands.
Sumarferð 27. maí
Lokaútkall í fyrri sumarferð ársins- til Hvollvallar (Lava Center) og á Njáluslóðir, miðvikudaginn 27.maí kl 09:00 frá Hlégarði.. Ferðanefndin
Ljósmyndasýning
Ljósmyndasýning ljósmyndaklúbbs Brúarlands, hátíðleg opnun 29.maí – kl. 14:00 – Háholti 3.
Skoðaðu fjölbreytt verk félagsmanna.
Allir velkomnir, léttar veitingar.
Aðalfundur FaMos 2026
Aðalfundur FaMos, félags aldraðra í Mosfellsbæ verður haldinn mánudaginn 16.febrúar kl. 19:00 í Hlégarði. Eftir hefðbundin aðalfundarstörf mætir danshópurinn “Sporið” og sýnir þjóðdansa.
Tilkynning frá FaMos
FaMos minnir félaga að greiða félagsgjöldin sem fyrst. Krafa hefur verið send í heimabanka og þegar hún hefur verið greidd er félagskortið sent rafrænt í tölvupósti. Þau sem ekki eru tölvuvön geta fengið félagskortið afhent.
Stjórnarmenn
Félag aldraðra í Mosfellsbæ auglýsir eftir stjórnarmönnum. FaMos auglýsir eftir áhugasömu fólki til að taka þátt í stjórn félagsins. Þar er um að ræða embætti formanns og almenna stjórnarmenn. Þau sem hafa áhuga eða vilja kynna sér málið sendi tölvupóst á famos@famos.is. Stjórnin
BINGÓ – 10. febrúar
BINGÓ – Þriðjudaginn 10. febrúar í borðsal Eirhamra kl. 13:30
Íþróttanefnd dagskrá vorönn 2026
Heilsa og Hugur – Leikfimi fyrir 60+ Staður: Úti og inni í íþróttahúsinu að Varmá. 11 vikna námskeið, 3 sinnum í viku. Hefst 12. janúar. Mánudaga: Allir hópar saman í Fellinu kl. 09.30. Þriðjudaga og föstudaga: Kl. 8.00, 9.00, 10.00 og 11.00. Verð: Kr. 18.000 fyrir tímabilið.
Myndlistarnámskeið – 29. jan
Námskeiðið er ætlað byrjendum og líka þeim sem lengra eru komnir. Fólk mætir með sína striga, liti (olíu- eða akríl) og pensla, en trönur og litir til að bjarga sér eru á staðnum.
Opið hús / menningarkvöld mánudaginn 8. desember
Opið hús / menningarkvöld verður mánudaginn 8. desember í Hlégarði kl. 20:00. Vorboðarnir syngja, Herdís Þorgeirsdóttir og vinkonur flytja stutt leikrit og kaffinefndin verður með sitt rómaða kaffihlaðborð. Ókeypis aðgangur fyrir FaMos félaga..
Gaman saman verður í borðsal Hlaðhömrum 2 þann 27. nóvember
Gaman saman verður haldið í borðsalnum að Hlaðhömrum 2 fimmtudaginn 27. nóvember (síðasta fyrir jól). Helgi R. Einarsson tekur á móti leikskólabörnum og spilar og skemmtir fólki 🙂 – Allir velkomnir, það er gaman saman.
Handunnar vörur í Basar búðinni Brúarlandi
Enn er eftir fullt af fallegum handunnum vörum hjá okkur í Basar búðinni Brúarlandi Háholti 3. Opið mánudaga – fimmtudaga kl. 11:00 – 16:00 og á föstudögum kl. 13:00 – 16:00. Fallegar handunnar vörur á góðu verði.
Myndir frá Opnu húsi í Hlégarði 10. nóvember
Annað Opna hús vetrarins var í Hlégarði 10. nóvember. Um 125 manns mættu og skemmtu sér vel. Eftir dagskrána var kaffinefndin að venju með sitt rómaða kaffihlaðborð og var nóg af öllu þrátt fyrir metfjölda eða um 150 manns að Stöllunum meðtöldum.
Opið hús / Menningarkvöld í Hlégarði 10. nóvember kl. 20:00
Opna húsið / menningarkvöldið verður í Hlégarði mánudaginn 10. nóvember kl. 20:00. Aðgangur ókeypis fyrir FaMos félaga.
Námskeið í kransagerð 12. nóvember kl. 11:00
Námskeið í kransagerð fer fram í Brúarlandi, Háholti 3 kl. 11:00 þann 11. nóvember. Námskeiðið kostar kr. 12.900.











