Fréttir úr starfi FaMos
Félag aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni
Golf á Hlíðarvelli
PÚTT – Byrjar 28. September, mánudaga og fimmtudaga kl 10:45. Golfskálinn á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ.
Fræðslufundur í Hlégarði
GOTT AÐ ELDAST – Hver er staðan?
Fræðslufundur í Hlégarði
23. september 2026 • kl. 14:00
Endurhæfingarteymi Mosfellsbæjar kynnir stöðu verkefnisins:
Sunna Kristjánsdóttir, stjórnandi teymisins
Guðleif Leifsdóttir, félagsráðgjafi
Lind Freyjudóttir, íþróttafræðingur
Sandra María Filippusdóttir, hjúkrunarfræðingur
Frá Heilsugæslu Mosfellsbæjar:
Jórunn Edda Hafsteinsdóttir,
faststjóri hjúkrunar og svæðisstjóri
Heilsugæslu Mosfellssumdæmis
Kristín Reynisdóttir, sjúkraþjálfi.
Opið hús / menningarkvöld 2026 í Hlégarði
Alto – Aldnir gefa tóninn 🎶
Fyrsta Opna húsið / menningarkvöld vetrarins 2026 verður í Hlégarði mánudaginn 12. október kl. 20:00.
Öldungarnir sjö og Edda í hljómsveitinni Alto ætla að skemmta gestum með fjölbreyttum lögum – allt frá bítlatímanum til dagsins í dag – og jafnvel verður stiginn dans á gólfinu! 💃🕺
Sund í Lágafellslaug
Minnum á sundtímana í Lágafellslaug.
Fyrir þá sem eru skráðir í Sundtímana í Lágafellslaug eru tímarnir eftirfarandi:
Mánudagar kl. 14:10
Þriðjudagar kl. 15:15
Miðvikudagar kl. 15:00
Fimmtudagar kl. 13:25
Við biðjum alla um að mæta tímanlega í sinn tíma.
Kveðja, Íþróttanefnd FaMos 💙
Íþróttanefnd FaMos – Dagskrá haustannar 2026
Íþróttanefnd FaMos – Dagskrá haustannar 2026. Íþróttanefnd FaMos býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir haustið 2026. Allir eru velkomnir að taka þátt – komdu með og vertu með! Hreyfing – Heilsa – Félagsskapur – Gleði
Opið hús
Opið hús fyrir eldri fólk í Hlégarði.
Mosfellsbær býður eldri íbúum til opins húss í Hlégarði miðvikudaginn 26. ágúst kl. 14–16.
Á opna húsinu verður kynnt sú þjónusta og þau úrræði sem standa eldri fólki til boða hjá sveitarfélaginu.
📅 Miðvikudagurinn 26. ágúst
🕑 Kl. 14–16
📍 Hlégarður, Háholt 2, Mosfellsbæ
Heitt verður á könnunni og öll eru velkomin!
Ljósmyndasýning 2026
Ljósmyndasýning í Brúarlandi.
Allur ágóði rennur til þeirra sem minna mega sín hér í Mosfellsbæ.
Í Brúarlandi stendur yfir ljósmyndasýning í sumar á vegum meðlima Ljósmyndaklúbbs Brúarlands.
Sumarferð 27. maí
Lokaútkall í fyrri sumarferð ársins- til Hvollvallar (Lava Center) og á Njáluslóðir, miðvikudaginn 27.maí kl 09:00 frá Hlégarði.. Ferðanefndin
Ljósmyndasýning
Ljósmyndasýning ljósmyndaklúbbs Brúarlands, hátíðleg opnun 29.maí – kl. 14:00 – Háholti 3.
Skoðaðu fjölbreytt verk félagsmanna.
Allir velkomnir, léttar veitingar.
Basar Sala í Hlégarði 24. nóvember kl. 14 – 17
Hinn árlegi basar á vegum félagsstarfsins í Mosfellsbæ verður haldinn sunnudaginn 24. nóvember kl. 14:00 – 17:00 í Hlégarði. Vorboðar syngja fyrir gesti og kaffisala á vegum kirkjukórsins.
Aðventu skreyti námskeið
Námskeið í aðventuskreingum fer fram í Brúarlandi, Háholti 3, dagana 26., 27. og 28. nóvember nk kl. 11:00 – 15:00.
Skreyti námskeið 23. október kl. 12:00 – 15:00
Námskeið í gerð kransa úr efni skreytt með ýmsu úr náttúrunni. Kennsla fer fram í Brúarlandi 23. október.
Bingó í borðsalnum þriðjudaginn 15. október kl. 13:30
Bingó í borðsalnum Hlaðhömrum 2 þriðjudaginn 15. október kl. 13:30. Spjaldið kostar 800 krónur. Allir velkomnir.
Kínaskák
Kínaskák í Brúarlandi alla fimmtudaga kl. 13:00.
Leir og kerti
Leir og kerti – 4 skipti – fimmtudagar 12 – 15 í Brúarlandi. Hefst 17. október. Allir velkomnir.
Viltu mála í hóp?
Við ætlum að stofna hóp fyrir þá sem vilja koma saman að mála og fá félagsskap (enginn kennari). Opið í listastofunni Brúarlandi Háholti 3 kl. 12:00-15:00 fimmtudaga. Byrjum 10. okt!
Gaman saman – Ari Trausti Guðmundsson – Grænland
Lítt þekkti nágranninn í austri – Fimmtudagur 3. október kl. 14 – 16 í Safnaðarheimilinu Þverholti 3.
Karlar í skúrum – Nýtt námskeið að hefjast
Kennt einu sinni í viku á miðvikudögum frá 17:00 til 20:00 í 6 vikur, alls 18 kennslustundir.
Opið hús/menningarkvöld 14. október – Delizie Italiane Tríóið
Opið hús mánudaginn 14. október í Hlégarði klukkan 20:00. Þeir voru frábærir í janúar og verða enn betri núna!
Upprifjun á gömlu dönsunum
Ef næg þátttaka fæst þá er fyrirhugað að rifja upp gömlu dansana miðvikudaginn 9. október og fimmtudaginn 10. október kl. 16:00 í Brúarlandi.
Línudans í Hlégarði hefst 8. október
Ef næg þátttaka fæst þá hefst línudans í Hlégarði þann 8. október kl. 15:00 – 16:00.











