Fréttasafn
Fréttasafn FaMos – Hvað er á döfinni
Ferðir
Ferðir á vegum FaMos.
Hreyfing 60+
Hreyfing fyrir 60+ Famos
Fréttir úr starfinu
Tilkynning frá íþróttanefnd FaMos
Dansleikfimin verður ekki í maí, byrjar aftur í september.
Vatnsleikfimin verður aftur á móti út maí. Síðasti tíminn 28. maí.
Kveðja,
Ólöf, formaður íþróttanefndar FaMos
Íþróttastarf hefst aftur 15. apríl
Allt íþróttastarf hefst aftur frá og með fimmtudeginum 15. apríl.
Landsmót UMFÍ 50+ í Borgarbyggð 27. – 29. ágúst nk.
Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Borgarbyggð dagana 27. – 29. ágúst nk. Áætlað er að dagskrá liggi fyrir eigi síðar en 15. maí.
Opinn kynningarfundur – Hagir og líðan aldraðra
Félagsmálaráðuneytið, velferðarsvið Reykjavíkurborgar og LEB – Landssamband eldri borgara fengu Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands til að gera fyrir sig könnun á högum og líðan aldraðra á Íslandi 2020. Rafræn kynning á niðurstöðum könnunarinnar verður haldin 7. apríl nk. kl. 13.
Kosningar 2021 – Málefni eldri borgara LEB
Komið þið sæl,
Undanfarið hefur hópur á vegum Landssambands eldri borgara rætt hvernig við getum haft áhrif á að okkar málefni fái eðlilegan hljómgrunn í næstu alþingiskosningum. Send var út áskorun um að eldri borgarar gæfu kost á sér ofarlega á framboðslistum. Það hefur þegar vakið nokkur viðbrögð. Nú hafa verið sett fram áhersluatriði fyrir kosningarnar. Við vonumst til að þið ræðið þessi atriði við frambjóðendur fram að kosningum.
Bestu kveðjur,
Ingólfur Hrólfsson, formaður FaMos
Íþróttastarf sett á ís
Vegna hertra sóttvarnaaðgerða fellur öll starfsemi á vegum íþróttanefndar FaMos niður næstu þrjár vikur. Um er að ræða vatnsleikfimi, ringó, boccia, dansleikfimi, línudans, púttæfingar og leikfimiæfingar í World Class. Nánar verður greint frá framhaldinu þegar þar að kemur.














