Útisumarfjör fyrir hressa eldra fólkið í sumar

Mosfellsbær býður upp á frítt 8 vikna útinámskeið frá 18. maí-8. júli.

Tímarnir verða tvisvar sinnum í viku á þriðjudögum  og fimmtudögum. Tveir hópar verða í boði kl. 9:00-9:50 og 10:00-10:50.

Á þriðjudögum er mæting við íþróttamiðstöðina að Varmá en á fimmtudögum er mæting við íþróttamiðstöðina að Lágafelli. Áherslur á þessu námskeiði eru ganga, stafaganga, auk styrktar- og jógaæfinga, ásamt góðum, liðkandi teygjuæfingum, glaum og gleði.
Námskeiðið á því að henta öllu eldra fólki.

Kennarar eru Halla Karen og Berta.

Skráning fer fram hjá félagsstarfinu í síma 586-8014 eða hjá Elvu Björgu forstöðumanni í síma 698-0090. Einnig má senda póst á elvab@mos.is.

Verkefnið er ríkisstyrkt viðbótarverkefni í félagsstarfi fullorðinna fyrir sumarið 2021 vegna Covid-19.