Vefstjóri

About Vefstjóri

This author has not yet filled in any details.
So far Vefstjóri has created 153 blog entries.

Opið hús í Hlégarði 9. október kl. 20

Fyrsta Opna hús / menningarkvöld vetrarins verður í Hlégarði mánudaginn 9. október kl. 20:00. Þar  mun H&M dúettinn (Heiða og Matthías) flytja þessi gömlu góðu og hvetja okkur til að taka vel undir þegar við á. Í lokin verða flutt nokkur danslög fyrir þá sem vilja taka nokkur lauflétt spor. 

2023-10-03T16:16:22+00:003. október 2023|Fréttir|

Pútt æfingar

Fyrir alla meðlimi Félags eldri borgara í Mosfellsbæ þeim að kostnaðarlausu. Á mánudögum kl. 11 í Golfskálanum, neðri hæð. Æðarhöfða 35, Mosfellsbæ.

2023-10-02T09:43:52+00:002. október 2023|Fréttir|

Félagsvist

Alla föstudaga kl. 13:00 í borðsal Eirhamra, Hlaðhömrum 2. Aðgangseyrir kr. 300 sem fer upp í verðlaun :)

2023-08-14T13:42:40+00:0014. ágúst 2023|Fréttir|

Leikfimi hefst 31. ágúst

Leikfimin á Eirhömrum hjá sjúkraþjálfaranum Karin Mattson er alla fimmtudaga í íþróttasalnum Hlaðhömrum 2. Leikfimin er gjaldfráls og liður í heilsueflandi samfélagi í Mosfellsbæ og er gjaldfrjáls, ekki þarf að skrá sig :)

2023-08-14T13:35:54+00:0014. ágúst 2023|Fréttir|

Bilun á vefsvæði

Framundan er enn eitt skemmtilegt starfsár hjá FaMos fyrir eldri borgara í Mosfellsbæ. Áhugasamir geta skráð sig í félagið á vefsvæði félagsins undir Skráning í FaMos.

Frá miðjum júlí og til 9. ágúst 2023 kom upp bilun á vefsvæði félagsins og fóru skráningar ekki í gegn og bárust því ekki til formanns til úrvinnslu. Ef einhverjir hafa skráð sig á vefnum á því tímabili þá biðjum við viðkomandi um að senda aftur inn sína skráningu. Beðist er velvirðingar á þessum óþægindum.

2023-08-09T14:58:48+00:009. ágúst 2023|Fréttir|

Vorferð FaMos

Vorferð FaMos var farin miðvikudaginn 7. juni í blíðskapar veðri. Friðheimar í Reykholti, Bláskógarbyggð voru heimsóttir, starfsemin skoðuð í fylgd Knúts staðarhaldara og hádegisverður snæddur.

2023-12-07T14:46:13+00:0012. júní 2023|Ferðir, Fréttir|
Go to Top